27.9.2011 | 13:09
En...
Vil taka það fram að ég las ekki yfir þessa skýrslu... En ég hef nokkrar vangaveltur um hana, þegar talað er um að úrræðin séu að mörgu leiti sambærileg getur nokkuð verið að úrræðin séu einnig að mörgu leiti ekki sambærileg?
Þegar talað um sambærileg er þá verið að meina að t.d. 110% leiðin sé til í báðum tilvikum en kannski vextir (heildarvextir þegar allt er tekið inn í) séu mismunandi, einnig laun (þegar allt er tekið inn í) séu það einnig?
Getur verið að þegar allt er tekið til alls að þá eru úrræði fyrir skuldara hér á landi ekkert sambærileg við úrræði skuldara á norðurlöndunum? það er nefnilega auðvelt að segja að hlutir séu sambærilegir með því að skoða lítinn part af heildinni...
Spyr sá sem ekki hefur skoðað málið náið og ekki veit, kannski er einhver þarna úti sem getur upplýst okkur!
|
Svipuð úrræði og annars staðar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2011 | 12:11
Það hefði verið áhugavert..
|
Segja SFF þjófkenna þjóðina |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2011 | 18:19
Ekki alveg rétt þessi frétt..
Það er rangt að nota orðið stela í þessari frétt þar sem þetta er ekki þjófnaður, þar sem ekkert er tekið er erfitt að kalla þetta þjófnað, þar sem ekki er verið að hafa tekjur af viðkomandi með því að sækja sér höfundarréttarvarið efni á netinu (allavegana er ekki hægt að sanna það) þá er það ekki þjófnaður heldur, þegar 1000 manns sækja eitthvað höfundarréttarvarið efni á netinu þýðir það ekki töpuð sala upp á 1000 eintök.
Að deila höfundarréttarvörðum hugbúnaði er brot á höfundarréttarlögum ekki þjófnaður, eftir því sem ég best veit þá er ekki ólöglegt hér á Íslandi að sækja höfundarvarið efni en það er ólöglegt að deila því.
|
Kínverjar stela mestum hugbúnaði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2011 | 11:40
Hún ætti að líta á eigin barm...
Ólína gagnrýnir forseta Íslands fyrir réttmæta gagnrýni á ríkisstjórnina, það er alveg rétt hjá honum að ríkisstjórnin hafi beygt sig fyrir ótækum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave-málinu.
Samfylkingin og VG eru rosalega viðkvæm fyrir gagnrýni og má ekkert segja um nokkurn skapaðan hlut sem tengist þessari ríkisstjórn eða ríkisstjórnarflokkunum, það er allt reynt að þagga niður og fela.
Ólína segir líka " Einnig hefði komið í ljós að eignir Landsbankans dygðu fyrir kröfum Breta og Hollendinga og því mætti spyrja hvort Íslendingar hefðu til einskis þjáðst í umræðunni undanfarin tvö ár." það er alveg rétt, þjóðin var að þjást til einskis í þessu Icesave máli, það átti að henda því út af borðinu strax, ekki að eltast við það í þessi 2 ár eins og ríkisstjórnin hamaðist við, ríkisstjórn sem vill svo skemmtilega til að hennar eigin flokkur er aðili að, þarna er Ólína í raun að gagnrýna eigin flokk eflaust án þess að ætla sér það.
Ég tel að Ólína ætti að líta á eigin barm þegar kemur að því að ætlast til þess að nokkur einstaklingur hvort sem hann er forseti eða ekki gangi inn í umræður af ábyrgð, sérstaklega þar sem hún er rosalega dugleg við að opna á sér trantinn og spúa út algerri vitleysu.
|
Gangi inn í umræðu af ábyrgð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.8.2011 | 15:53
Dæmir sig sjálfur.
Þórólfur er löngu búinn að dæma sig sjálfur með sínum skrifum og skoðunum, hver einasta fullyrðing hjá honum í pistlunum sínum um landbúnaðinn og bændur var hrakin samstundis, ekkert af því sem hann hélt fram var rétt hvorki nú né á dögum Icesave, Rektor HÍ vill kannski leyfa sínu fólki að hafa sitt skoðanafrelsi en er henni sama þó að hennar fólk beinlínis ljúgi (miðað við staðreyndar villur Þórólfs) í fjölmiðlum?
Hvet fólk til að lesa eftirfarandi greinar þar sem "staðreyndir" hans.
http://www.visir.is/hafa-ber-thad-sem-rettara-reynist/article/2011708199993
http://timinn.is/uppljostrarinn/threfoeld_hagfraedivilla_%C3%BEorolfs.aspx
|
Þórólfur: Dæmir sig sjálft |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.6.2011 | 16:45
Þetta breytir litlu fyrir leikinn og leikendur
|
„Peningar ná ekki yfirráðum“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.6.2011 | 19:11
Furðulegt
Það er sorglegt að sjá það að aðilar sem stofna lífi annara í hættu komist upp með það, þessum einstaklingi hefði átt að vera vísað strax úr landi eftir þessi svokölluðu "mótmæli".
Það má vel vera að þessi maður hafi verið örvæntingafullur en það gefur honum ekki réttindi til að gera það sem honum sýnist.
Sorglegt að sjá hvað mikið af fólki er hrætt við að refsa öðrum fyrir brot bara af því að þeir eru af erlendu bergi brotnir, það má nefnilega ekki særa blygðunarkennd útlendinga!!
|
Íranskur hælisleitandi ekki ákærður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.6.2011 | 12:28
Furðulegt.
Ég er ekki alveg að skilja afhverju það var vandamál að hafa vöruna merkta hjá framleiðanda, þetta hefur virkað fínt hingað til, ef fólk er hrætt við eitthvað svindl þá væri alveg eins hægt að vigta vöruna og bera saman kíló verð og kostnað...
Er þetta komið frá ESB út af einhverjum samkeppnislögum?
|
Kvartað yfir ófullnægjandi verðmerkingum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2011 | 16:43
Merkilegt að þetta skuli vera fréttnæmt.
Það er ótrúlegt að horfa upp á flestar fréttir þegar verið er að lækka eldsneyti því þetta er svo ótrúlega ómerkilegar fréttir, hér er lækkun um á heilar 3 krónur, já góðir hálsar ÞRJÁR krónur af 237 krónum, þetta þýðir lækkun upp á ~1.3%, það kostar mig meira að eltast við stöðina sem var að lækka eldsneytið heldur en að fara á þá stöð sem er næst mér þótt að eldsneytið sé 3 krónum dýrara!!
Af hverju eru ekki fréttir þegar aðrar verslanir lækka sínar vörur um 1.3%, hvað gerir þeirra vörur ómerkilegri, afhverju fá þessar verslanir ekki ókeypis auglýsingu í blöðunum....
Olíufélögin hafa vanið of marga á það að nokkurra króna lækkun sé efni sem er verðugt á forsíðuna í öllum blöðum landsins.... eitthvað sem er mér gjörsamlega óskiljanlegt að viðgangist og hvað það eru ótrúlega margir sem hlaupa til að kaupa sér eldsneyti þegar svona ómerkilegar fréttir koma fram.
Eða er þetta bara ég sem hugsa svona??
|
Atlantsolía lækkar eldsneytisverð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2011 | 19:08
Ég spyr !!
|
Vilja breyta skattkerfinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Halldór
Nýjustu færslur
- 27.9.2011 En...
- 27.9.2011 Það hefði verið áhugavert..
- 7.9.2011 Ekki alveg rétt þessi frétt..
- 7.9.2011 Hún ætti að líta á eigin barm...
- 24.8.2011 Dæmir sig sjálfur.


