Ekki gott!

Eru þetta vinnubrögð sem við viljum að handhafa valds á Íslandi stundi, og hvað þá þegar þeir eru að troða upp á þjóðina mörg hundruð milljarða lán, þ.e. að þau "halda" að það sé í lagi og þetta standist!!

Er þetta eitthvað sem maður vill t.d. heyra frá lögfræðingi sína sem t.d. væri að verja  í máli þar sem búið er að saka mann um þjófnað, þar sem maður er saklaus,  og hann segir við mann "þau hljóta að fella frá dómnum ef þú bara játar á þig brotið".

Vonandi er þetta ekki hugsunin bak við öll þau verk sem þau eru að vinna í og segjast vera búin með..

Sér einhver fyrir sér 100 daga áætlanalistann.

Steini : "Jóka vorum við búin setja fram áætlun um að endurfjármagna bankana".

Jóka : "Já, það hlýtur að vera, ég held ég hafi séð eitthvað um það einhverstaðar".


mbl.is Fyrirvararnir hljóta að halda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grín.

Alltaf kemur meira og meira í ljós hversu mikið grín þessi samningasveit var sem var send til Breta og Hollendinga að semja um Icesave.

Það hefur eflaust verið veðmál á milli samningamanna á hinni hliðinni hvað þeir kæmust upp með að troða í þennan samning.

Lögfræðingur 1 við lögfræðing 2 hjá Bretum : "Hey I bet 50 pounds I can get those guys to accept this deal to be backed up by the government heh heh."

"Double or nothing if I get them to shiver while they write their name on the contract!!!"

Ætli þetta hafi hugsanlega bara verið raunin?


mbl.is Icesave-áliti dreift á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prýðilega sáttur að þröngva ennþá meira skuldafeni yfir landi og þjóð

Sorglegt að heyra þetta, þingmaður sem er stoltur yfir því að svíkja land og þjóð í fáranlegann skuldapakka.

Sameiginlegt markmið allra hafi frá upphafi verið að tryggja sem sterkasta stöðu þjóðarinnar gagnvart viðsemjendum sínum

Þetta markmið náðist aldrei, heldur misheppnaðist alveg hrapalega.

þetta góða fólk sem eytt hefur mestöllu sumrinu í gríðarlega vinnu á hrós og þakkir skildar

Hvernig getur maðurinn ætlast til þess að nokkur manneskja hrósi eða þakki vinnu sem er banabiti fyrir velferð þjóðarinnar.

Það er ákáflega gott að fá farsæla lausn á þessu máli og fá það frá þannig að það hætti að tefja fyrir og við getum snúið okkur að uppbyggingarverkefnunum.

Já það er eflaust ákaflega gott fyrir Breta og Hollendinga þessi "farsæla lausn", Steingrími tókst að gera sína vinnu vel fyrir þá Breta og Hollendinga, verst að hann var ekki að vinna að hagsmunum fyrir þá sem borga honum laun þ.e. Íslenska þjóð, ætli hann sé í svartri vinnu fyrir áðurnefndar þjóðir?


mbl.is Fagnar víðtækri samstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil andstaða gagnvart vinnubrögðum stjórnarinnar.

Gott framtak þarna í að mótmæla afglöpum núverandi ríkistjórnar, sem eru mörg og hæst þar lætur ESB umsókn og glæpsamlega lélegur Icesave samningur.


mbl.is Sneisafullur Austurvöllur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðinlegt orðalag hjá ríkistjórninni

Er þetta ég eða virðist þetta vera vinnureglur hjá þessari ríkistjórn, ef þau nenna ekki að standa í því þá bara drífa það í gegn!! 

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir forseti Alþingis segir starfsfólk þingsins orðið óþreyjufullt að komast í sumarfrí.

Svavar Gestson "Nennti ekki að liggja yfir þessu lengur. "

?? "Leiðinlegt að hafa þetta mál hangandi yfir manni", um icesave.


mbl.is Sátt að nást um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppbyggingarstarfið á Íslandi

Mikil spenna sé á milli stjórnarflokkanna og málið gæti bundið enda á samstarfið. Það myndi tefla stuðningi annarra ríkja við uppbyggingarstarfið á Íslandi í tvísýnu.

Er þetta ekki ein aðal ástæðan fyrir því að það fást engin lán erlendis, að það tengist í raun ekki þessum Icesave samningi sjálfum heldur því að ríkistjórnin er í raun ekki búin að leggja fram neitt uppbyggingarplan, ekki nein fjárhagslegar áætlanir eða einhver plön önnur en að leggja fram umsókn í ESB og vona að allt lagist.

Svo skiptir það í raun einhverju máli fyrir okkur almenna borgar þó að samstarfið endaði og það þyrfti að fara í kosningar, þá allavegana getur ríkistjórnin ekki haldið áfram þessar skemmdarvarga starfsemi sem virðist einkenna hana, t.d. eins og Icesave.

Allar svokallaðar "lausnir" sem hafa komið fram virðast hafa einn hlut sameiginlega og það er að moka skítnum á undan sér.

Þarf maður ekki að lifa í voninni að það sé eitthvað að gerast fljótlega fyrir okkur, þegna Íslands, því ekki eru Icesave, ESB eða nýji seðlabankastjórinn að redda málunum eins og lofað var.


mbl.is Financial Times fjallar um Icesave-deiluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur ekki sannfærandi.

Eftir að hafa lesið eftirfarandi fyrirsögn "Steingrímur um Icesave: Það gat aldrei komið út góð niðurstaða fyrir Ísland " þá blöskraði mér.

Svona tala nefnilega þeir sem eru búnir að gefast upp og sýnir það og sannar Steingrímur hér, einnig segir hann eftirfarandi "Steingrímur sagði gagnrýni á samninganefndina í hæsta máta ósanngjarna því reiðin ætti með réttu að beinast að þeim sem stofnuðu til vandamálsins.".

Er maðurinn ekki að grínast?, hvernig fær hann það út að þó að vandamálið sé einhverjum öðrum að kenna að þá sé allt í lagi fyrir hann að stunda sína vinnu illa!

Hér er annað dæmi : Þjófur stelur veski fyrir frama lögregluþjón, lögregluþjónn ákveður að elta þjófinn ekki, seinna er lögregluþjónninn spurðu hví hann elti ekki þjófinn, hann svara : æji ég sá enga ástæðu til þess því hann hefði eflaust náð að komast undan hvort eð er.

Er þetta eitthvað sem við myndum sætta okkur við hjá lögregluþjónum landsins? mig grunar að svarið sé nei!

Svo hvers vegna Steingrímur er það allt í lagi fyrir Icesave samninganefndina að koma heim með lélegann samning þó að vandamálið sé einhverjum öðrum að kenna?

Ég vona okkar allra vegna að þetta hafi verið léleg fréttamennska og það hafi verið haft rangt eftir honum Steingrími frekar en hinn kostinn, sem er Ríkistjórn sem er búin að gefast upp.!


« Fyrri síða

Um bloggið

Halldór

Höfundur

Halldór Björgvin Jóhannsson
Halldór Björgvin Jóhannsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband